Fréttir, Óflokkað

Set verður á stórsýningunni Verk og Vit 2018

Þann 8. mars næstkomandi opnar stórsýningin Verk og Vit í Laugardalshöll. Sýningin er stærsta fagsýning ársins þar sem fyrirtæki í byggingariðnaði koma saman og kynna vöruúrval og þjónustu sína. Set mun að sjálfsögðu taka þátt með veglegum bás þar sem við sýnum okkar helstu framleiðsluvörur og lausnir á sviði hitaveitu-, vatns- og fráveitulagna. Sýningin er opin fyrir fagaðila 8.-9. mars og fyrir almenning 10.-11. mars. Nánari upplýsingar er hægt að finna hér.

Við hlökkum til að taka þátt í þessari veglegu og spennandi sýningu og vonumst til að sjá sem flesta í básnum okkar.