Tilkynningar

Nýir eigendur taka við SET

Gunnar Fjalar Helgason og Orri Hauksson á starfssvæði Set

Fréttatilkynning

Selfoss 12. maí 2026   Iðnfyrirtækið Set ehf. á Selfossi hefur skipt um hendur. Félagið er um hálfrar aldar gamalt framleiðslufyrirtæki, sem sérhæfir sig í framleiðslu einangraðra röra og plaströra fyrir innviðakerfi, svo sem hita-, vatns- og fráveitur. Þá er búnaður félagsins nýttur í matvælaframleiðslu, vegagerð, fjarskiptakerfum og framkvæmdaiðnaði.

Seljendur eru fjölskyldan sem stofnaði félagið og rak fyrstu áratugina. Einar Elíasson stofnaði félagið Steypuiðjuna árið 1968 á Selfossi og setti Set á laggirnar áratug síðar, 1978. Bræðurnir Bergsteinn og Örn Einarssynir stýrðu félaginu lengi vel og aðrir afkomendur stofnandans hafa unnið þar fram á þennan dag.

Utan höfuðstöðvanna á Selfossi starfrækir félagið sölustarfsemi í Danmörku, framleiðslu í Þýskalandi og lagerhald í Reykjavík. Félagið veltir ríflega 5 milljörðum króna á ári og er að jafnaði með um hundrað manns í vinnu, flesta á Suðurlandi.

Kaupendur Sets eru Orri Hauksson, verkfræðingur og MBA, og Gunnar Fjalar Helgason, hagfræðingur. Saman voru þeir í stjórnendateymi Símans í rúman áratug þar til nýlega, Orri sem forstjóri og Gunnar sem yfirmaður fjárfestinga og stefnumótunar. Orri er stjórnarformaður landeldisfyrirtækisins First Water í Þorlákshöfn og var áður framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og fjárfestingastjóri hjá Novator Capital Partners. Gunnar starfaði áður í fjárfestingabanka í Bandaríkjunum og rak fjárfestingarsjóð á Íslandi. Kaupendur nutu ráðgjafar Arion banka og Logos lögmannsstofu við kaupin, auk þess sem Arion fjármagnar hluta kaupanna. KPMG ráðlagði seljendum í viðskiptunum.

Orri Hauksson, nýr stjórnarformaður Sets:Við fögnum því að taka við þessu trausta iðnfyrirtæki á Suðurlandi. Fjölskyldufyrirtæki eru algengasta og árangursríkasta rekstrarform fyrirtækja í heiminum. Eftir því sem tíminn líður þróast eignarhald slíkra fyrirtækja iðulega og að okkar mati er fyrirtaks tími núna að næstu eigendur taki við Seti. Sem nýir hluthafar berum við mikla virðingu fyrir farsælli sögu félagsins og þeirri gæðaframleiðslu sem fjölskyldan hefur byggt upp með öflugum starfsmönnum og stjórnendum. Við hlökkum til að taka þátt í framþróun félagsins og halda áfram þessu góða starfi til langs tíma. Okkur þykir mikilvægt að halda góðu sambandi við seljendur eftir eigendaskiptin og nýta þeirra uppsöfnuðu þekkingu eins og framast er unnt.

 Tækifærin á Íslandi eru margvísleg. Set byggir framleiðslu sína á hreinum endurnýjanlegum orkugjöfum, en innflutt samkeppni reiðir sig einatt á jarðefnaeldsneyti og þunglamalegar flutningakeðjur.

Framundan á Íslandi er að byggja upp nýja innviði í veitustarfsemi, orkuöflun og vegagerð, auk þess að uppfæra neðanjarðarhagkerfið, ef svo má kalla, sem víða er komið til ára sinna í okkar góða landi. Þá er matvælaframleiðsla í örum vexti á Íslandi og þarfnast sú starfsemi hágæðainnviða á borð við þá sem Set framleiðir.

 Íslenskt efnahagslíf er útflutningsdrifið en stór hluti neysluvara okkar og iðnvarnings er innfluttur. Engu að síður er rík þörf fyrir staðbundna þjónustu og öfluga innlenda framleiðslugetu, sér í lagi þegar kemur að lykilinnviðum. Mikilvægi þessarar innlendu viðbragðsgetu sannaðist svo um munaði í nýafstöðnum jarðeldum á Suðurnesjum.

Við þær krefjandi aðstæður tókst Seti að afhenda nauðsynlegan lagnabúnað á örskammri stundu til að lágmarka tjón á kerfum – sem öllu skipti fyrir daglegt líf fólks á svæðinu. Félagið er því mikilvægur viðbragðsaðili varðandi öryggi innviða á veitusviði.

 Starfsemi félagsins einkennist af ríkri gæðavitund og háu tæknistigi, þar sem áhersla á framleiðni og viðbragðsflýti tryggir að fyrirtækið getur mætt krefjandi verkefnum hratt og örugglega. Það er alltaf sumar á Selfossi. Þessi sterka staða og mikilvægi fyrirtækisins fyrir lykilinnviði lands heillaði okkur, nýja eigendur Sets. Sá er andinn sem hvetur okkur til áframhaldandi uppbyggingar á þeim trausta grunni sem fyrir er.“ 

Örn Einarsson, fráfarandi stjórnarformaður Set ehf.:Við fjölskyldan erum ánægð með að kynna nýja eigendur sem taka við rekstri félagsins. Saga Einars Elíassonar og fjölskyldu hans er samofin rekstri þessa merkilega félags og við erum stolt af þeim afrakstri og þeim árangri sem náðst hefur í gegnum árin. Á sama tíma vitum við að áfram eru gífurlegir möguleikar til vaxtar og mikil þörf fyrir það mikilvæga starf sem fyrirtækið sinnir. Eftir áratuga uppbyggingu af hálfu Einars og afkomenda hans er komið að því að færa reksturinn yfir á nýjar hendur. Við teljum það jákvætt skref fyrir framtíð félagsins. Nýir eigendur koma með nýja sýn, ný tækifæri og aukinn kraft til áframhaldandi uppbyggingar og þróunar.

 Við erum þess fullviss að viðskiptavinir munu áfram kunna að meta þá þjónustu, þekkingu og framleiðslu sem Set hefur byggt upp í gegnum tíðina, sem og það öryggi sem felst í því að framleiða mikilvæga innviði fyrir íslenskt samfélag. Þar má nefna lagnakerfi fyrir hitaveitur, vatnsveitur og fráveitur, auk nýrra og ört vaxandi atvinnugreina á borð við fiskeldi sem á síðustu árum hefur orðið mikilvægur þáttur í uppbyggingu atvinnulífs á Íslandi. Við viljum þakka starfsfólki, viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir traustið og samstarfið í gegnum árin og hlökkum til að fylgjast með Set halda áfram að vaxa og dafna á komandi árum.

Guðbjörg Sæunn Friðriksdóttir, forstjóri Set ehf: „Það eru stór og spennandi tímamót hjá okkur og það gleður mig að við höfum lokið sölu á Set ehf. Nýir eigendur koma inn með nýja sýn og víðtæka reynslu sem mun styrkja áframhaldandi vöxt á þeim trausta grunni sem Set býr yfir.

 Starfsfólkið okkar hefur staðið sig stórkostlega í gegnum þetta ferli og sýnt ótrúlega þrautseigju, það er ekki sjálfgefið og vil ég þakka þeim heilshugar. Starfsfólkið er hjartað í fyrirtækinu og slær taktinn alla daga.“

Nánari upplýsingar veitir:

Orri Hauksson, stjórnarformaður Sets ehf.

Sími: 855 4040