Óflokkað

Set á IFAT 2026

Fjórir starfsmenn SET sóttu nýverið heimsýninguna IFAT 2026 í München í Þýskalandi, sem er ein stærsta og mikilvægasta sýning heims á sviði vatns-, fráveitu- og umhverfistækni.
Ferðin var nýtt til að styrkja tengsl við helstu birgja SET, kynna sér nýjar lausnir og ræða komandi verkefni. Á IFAT safnast saman leiðandi framleiðendur og sérfræðingar úr allri keðjunni, sem gerir sýninguna að kjörnum vettvangi fyrir samstarf og þróun.
Starfsmennirnir kynntu sér fjölbreyttar nýjungar í lagnageiranum, þar á meðal, nýjar lausnir í vants- og fráveitulögnum.

Þátttaka á alþjóðlegum sýningum eins og IFAT er mikilvægur liður í því að fylgjast með þróun markaðarins og tryggja að SET sé ávallt í fremstu röð þegar kemur að nýjungum og þekkingu í greininni.