Set Mótið 2026 heppnaðist afar vel
Set Mótið 2026 fór fram á Selfossi um helgina við afar góðar aðstæður þar sem blíðskaparveður lék við þátttakendur. Um 800 strákar tóku þátt í mótinu að þessu sinni sem er með stærri fótboltamótum sumarsins.
Mótið hefur verið haldið árlega frá árinu 2014 og hefur vaxið jafnt og þétt með hverju árinu. Það laðar að sér þátttakendur víðs vegar að af landinu og hefur fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir flotta fótboltatakta og samveru fjölskyldunnar á suðurlandi.
Að sögn skipuleggjenda gekk mótið einstaklega vel í ár bæði hvað varðar skipulag og þátttöku. „Við erum gríðarlega ánægð með viðtökurnar. Veðrið lék við okkur og stemmingin var frábær allan tímann sagði Gunnar Borgþórsson, skipuleggjandi mótsins.“
Set Mótið hefur með tímanum orðið fastur liður í viðburðadagatali margra og bendir allt til þess að vinsældir þess haldi áfram að aukast á komandi árum.










