Fréttir, Óflokkað

Set er framúrskarandi fyrirtæki að mati Creditinfo

Set ehf. er framúrskarandi fyrirtæki árið 2017 fimmta árið í röð og er á meðal 2,2% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla skilyrði Creditinfo. Af rúmlega 38.500 skráðum fyrirtækjum á Íslandi uppfylla 862 skilyrði Creditinfo um styrk og stöðugleika.

Stjórnendur og starfsfólk Set er stolt af frammistöðu félagsins á íslenskan mælikvarða því kröfur Creditinfo eru strangar og ekki sjálfgefið að uppfylla þær allar í senn.