Set tók þátt í IceFish 2026
Set tók þátt í Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýningunni IceFish 2026, sem haldin var í Smáranum/Fífunni í Kópavogi dagana 22.–24. september. Sýningin er einn mikilvægasti vettvangur sjávarútvegs- og fiskeldisgeirans á Íslandi og laðar að sér fyrirtæki, sérfræðinga og kaupendur víðs vegar að úr heiminum.
Á sýningunni kynnti Set lausnir tengdar fiskeldi með áherslu á landeldi, ásamt því að kynna nýjan hnífloka úr plasti frá CYL.
Mikil ánægja var með viðtökurnar á sýningarbás Set og þann fjölda gesta sem lagði leið sína þangað. Við þökkum öllum þeim sem komu við hjá okkur fyrir góðar umræður og hlökkum til áframhaldandi samstarfs við þá sem starfa í sjávarútvegi og fiskeldi.
IceFish hefur verið haldin frá árinu 1984 og er einn helsti samkomustaður fyrirtækja og fagfólks sem starfar í sjávarútvegi, fiskvinnslu og fiskeldi.







