Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson heimsótti Set þriðjudaginn 1.nóvember. Með honum í för var skrifstofustjóri forsetaembættisins Árni Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins Orri Hauksson og forstöðumenn Samtaka iðnaðarins þær Katrín G. Þorsteinsdóttir og Rakel Pálsdóttir. Þetta er í fyrsta skipti sem forsetinn heimsækir fyrirtækið. Bergsteinn Einarsson framkvæmdastjóri Set og starfsfólk fyrirtækisins kynntu starfsemina og leiddu gestina um framleiðsludeildir fyrirtækisins. Að lokinni heimsókn forsetans í Set var haldið á Selfossflugvöll þar sem Einar Elíasson stofnandi Set sýndi flug, bíla og herminjasafn sitt.
Myndir frá heimsókn forsetans má sjá hér að neðan.





