Fréttir

Starfsfólk Samverks í heimsókn

[vc_row][vc_column width=”1/3″][grve_single_image image=”3731″][/vc_column][vc_column width=”2/3″][vc_column_text]Um helgina kom stór hópur starfsfólks Samverks á Hellu í heimsókn í röraverksmiðju Set á Selfossi. Bergsteinn Einarsson, forstjóri Set, tók á móti hópnum og fylgdi honum í gegnum framkvæmdasvæði fyrirtækisins ásamt því að kynna starfsemi fyrirtækisins. Að lokum var hópnum boðnar veitingar í matsal Set þar sem Bergsteinn hélt kynningunni áfram.

Eftir heimsóknina í Set fór hópurinn á flugminjasafn Einars Elíassonar þar sem húsbóndinn sýndi fólkinu þá muni sem þar er að finna.

Heimsóknin var hluti af skemmtiferð hópsins um Suðurland og lét fólkið ekki snjókomu og rok hafa áhrif á þá ferð.

Meðfylgjandi myndir voru teknar á laugardaginn.

[/vc_column_text][/vc_column][/vc_row][vc_row][vc_column][grve_gallery gallery_type=”stamp” ids=”3723,3720,3717,3726,3702,3714,3699,3705″][/vc_column][/vc_row]