Fréttir

Set styður við knattspyrnu á Selfossi

[vc_row][vc_column width=”1/2″][vc_column_text]Styrktarsamningur var undirritaður í dag á milli Set og Knattspyrnudeildar Umf. Selfoss. Set hefur verið einn aðal styrktaraðili Knattspyrnudeildarinnar síðustu áratugi og verður það áfram næstu tvö árin eftir undirritun þessa samnings.

Set hefur verið með auglýsingar á stuttbuxum meistaraflokka Selfoss undanfarin ár, eins og sjá má á myndinni hér til hliðar. Þá hefur knattspyrnudeildin síðustu ár haldið Set-mót fyrir 6. flokk og verður engin breyting á því næstu tvö ár. Þvert á móti er stefnt að því að hafa mótið enn stærra en síðustu ár og hafa þegar fjölmörg lið haft samband um þátttöku á því móti.

[/vc_column_text][/vc_column][vc_column width=”1/2″][grve_single_image image=”3681″][/vc_column][/vc_row][vc_row][vc_column][vc_column_text]Að lokum óskuðu forsvarsmenn Set eftir því að ákvæði yrði sett inn í styrktarsamninginn um að 10% styrktarupphæðarinnar sem Set leggur til fari beint og óskipt í sjóðinn Knattspyrna fyrir alla. Sjóðurinn er hugsaður til þess að styrkja unga knattspyrnuiðkendur sem eiga ekki kost á því að greiða æfingagjöld eða kaupa sér nauðsynlegan fatnað til knattspyrnuiðkunar. Með þessu vill Set gera sitt til þess að ungir iðkendur geti stundað íþróttina burtséð frá fjárhagsstöðu heimilisins.

Samkvæmt forsvarsmönnum Knattspyrnudeildar Selfoss er samningur sem þessi mikilvægur félaginu og samstarf við fyrirtækin á svæðinu ómetanlegt. Þannig er hægt að halda áfram því góða starfi sem hefur verið unnið hjá félaginu undanfarin ár. Einnig er Set-mótið mikilvægur hluti af þessu starfi og nú er ljóst að mótið árið 2017 verður það langstærsta til þessa, svo mikill er áhugi félaga á þátttöku.

Á myndinni fyrir ofan eru Elías Örn Einarsson, þjónustu- og öryggisstjóri Set, Adolf Ingvi Bragason, formaður Knattspyrnudeildar Selfoss, Gunnar Borgþórsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá Knattspyrnudeild Selfoss, og Ingi Rafn Ingibergsson og Guðjón Orri Sigurjónsson, leikmenn liðsins, við undirritun samningsins.

Á neðri myndinni standa þeir Bergsteinn Einarsson, forstjóri Set, og Örn Einarsson, framkvæmdastjóri sölu- og tæknisviðs Set með fyrrnefndum aðilum.[/vc_column_text][/vc_column][/vc_row][vc_row][vc_column][grve_single_image image=”3692″][/vc_column][/vc_row]